Ég heiti Brynjar Eyberg og er 5 ára




Ég kom í heiminn 14. nóvember 2006 kl. 10:18 og lét mömmu og pabba aðeins bíða eftir mér því ég var skrifaður þann 9. nóvember, svo ég lét vita að mér um kl. 6 að morgni þann 14. nóvember að nú væri komin tími til að fara uppá spítala því minn dagur væri kominn. Fæðinginn gekk rosalega vel og ég flaug nánast í heiminn og þurfti mamma ekki að hafa svo mikið fyrir þessu. Ég var 52 cm langur og 4005 gr. að þyngd, skolhærður með dökkblá augu.

Ég er sonur Elísabetar Þorvaldsdóttur og Sigurðar Jónssonar.
Ég er rosalega heppinn þar sem að ég á tvo eldri bræður þá Þorvald Snæ 9 ára og Sigurð Pálma 16 ára. Ég sé ekki sólina fyrir þeim og er allt svo findið og skemmtilegt sem þeir gera, enda eru þeir báðir mjög duglegir að leika við mig.
